..dugleg að ná tveimur bloggum á mánuði!?
“Eníveis” ég er lasin í dag og nýti tímann vel, það þíðir ekkert að hanga upp á rúmi!
Við hljótum að hafa gert slatta í september en það er nú bara svo að ég man ekki nokkurn hlut þessa stundina nema auðvitað eftir Danmerkur ferðinni okkar sem var alveg frábær!
Hér kemur þá ferðasagan:
Við flugum að morgni miðvikudags út til Köben. Við tókum lest niður í miðbæ sem tókst! Ótrúlegt en satt, og byrjuðum á að tékka okkur inn og skildum eftir allan farangur á þessu líka fína hóteli.
Þá var stímið tekið á Ráðhústorgið og vafrað aðeins á Strikinu, auðvitað misstum við okkur alveg í H&M fyrir krakkana en það tók nú svo á skarann að við ákváðum að fara bara með allt góssið aftur á hótelið og chilla smá. Eftir smá hvíld var stímið tekið á Tívolíið sem maður verður auðvitað að hafa skoðað ef maður fer til Köben, við fórum þó bara í 3 tæki þar því það var jú stefnan að taka Lególand með trompi.
Eftir Tívolíið römbuðum við á glæsilegasta veitingastað sem við Elli höfum borðað á, hann var svo flott mubblaður í mexíkó-texas stíl að það var hrein unun að sitja bara og horfa í kringum sig, maturinn var sko ekki af verri endanum heldur. Eftir matinn var stímið tekið beint á hótelið og ég held bara að allir hafi rotast áður en höfuðið náði koddanum!
Á fimmtudagsmorgninum, heldur seinna en reiknað var með, var svo tekinn strætó í dýragarðinn. Það var ekkert smá “upplivelsi” að sjá öll dýrin, gefa risa fíl að borða, sjá gíraffana, ísbirnina og öll þessi tignarlegu dýr, ég held að við höfum verið u.þ.b. 5 tíma að ráfa um garðinn!
Eftir dýragarðinn ákváðum við að flækjast bara dálítið um en byrjuðum auðvitað á að fara í Amalien borg í heimsókn til drottningarinnar og sáum þar vaktaskipti varðmannanna. Á þeim tímapunkti voru allir orðnir svo yfir sig þreyttir að við húkkuðum okkur tveggja hæða strætó og rúntuðum stóran hring um Kaupmannahöfn á meðan litlu grísirnir hvíldu sig!
Við enduðum á Strikinu kíktum “pínu” meira í búðir og fundum okkur svo þennan fína austurlenska veitingastað, snæddum þar og eyddum svo restinni af kvöldinu uppi á hóteli í rólegheitum að spila “algjört hitt” spil sem við fundum í einni leikfangabúðinni.
Á föstudagsmorgninum vöknuðum við líka seint svo við misstum af fyrstu lestinni til Billund, það gerði þó ekkert til, við tókum bara þá næstu. Það var rosalega gaman að sjá hálfa Danmörk á hraðferðinni, við tókum lestina til Vejle en þaðan tókum við rútu til Billund. Það er svo gaman að sjá öll þessi gömlu hús og smábæi á leiðinni, skrítið að mér fannst stundum eins og ég væri í Englandi þó svo ég hafi aldrei farið þangað, þetta var bara svo allt öðruvísi en maður hélt að það væri.
Við tékkuðum okkur svo inn á hótelinu okkar og drifum okkur bara beinustu leið í Lególand. Það var ekki spennandi veður, heldur þungt yfir og góðar líkur á rigningu en við Íslendingarnir létum það sko ekki stoppa okkur enda höfum við garðinn nánast útaf fyrir okkur og komumst í hvert leiktækið á fætur öðru án þess að þurfa nokkursstaðar að standa í biðröð, það var frábært! Það voru sko allir í S-inu sínu þann daginn!
Við borðuðum á hótelinu og notuðum restina af kvöldinu í spilið góða!
Á laugardagsmorgni var vaknað snemma, enda vitað að Lególandið beið okkar, það var þetta líka fallega veður glampandi sól og blíða og allt leit ljómandi út, nema hvað það fóru að renna tvær grímur á fólksfjöldafælnu Íslendingana þegar þeir sáu fólk í stríðum straumi renna og það bara í eina átt!!
Auðvitað laugardagur, hvað gerir fólk annað í Billund og nágreni með börnin sín?! Biðin í tækin var ekki svo slæm fram yfir hádegi en svo var málið orðið þannig að við þurftum að bíða í 20 mínútur + og þar með var þolinmæðin öll, við skelltum okkur í þrívíddar bíóið sem var algjört æði, þar var hnerrað á mann og skvettist yfir mann vatn úr ám, þannig að maður kom þvalur út en skælbrosandi!
Um fjögur leitið gáfumst við upp og tókum okkur bara labbitúr niður í miðbæ Billund. Þar var reyndar eins og hernaðar ástand væri skollið á, allar búðirnar voru lokaðar og ekki sást fólk á stangli, við vorum nú dálítið hissa því Billund er c.a. 5000 manna bær, það er meira að segja meira líf á Selfossi, það hljóta bara allir að hafa verið í Lególandi!
Eftir miðbærjarferðina tókum við okkur svo taxa niður á flugvöll og flugum heim ansi þreytt en alveg alsæl öllsömul.
Þessir dagar núna snúast um fátt annað en komandi yfirtöku, við erum þó ótrúlega róleg yfir þessu enda höfum við breitt bak og erum full viss um að við náum að höndla þetta á endanum þó kannski einhverjir byrjunarörðuleikar eigi eftir að gera vart við sig, það kemur þá bara allt í ljós..
Jæja þetta er orðið ansi gott fyrir mánuðinn en ekki búast við bloggi a.m.k næstu tvær vikurnar;-) Reyni samt að vera dugleg.. svo þangað til næst … kveðja Vilborg